Haukahlíð 10 - íbúð 432
Eignin
- 88,0m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Fjórða hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532713
- Merking
- 01-04-32
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 432. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í apríl 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 74,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611 og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Einstaklega vönduð og glæsileg 4ja herbergja horníbúð á 4. hæð. Birt stærð er 88 fm þar af 10,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.
Nánari lýsing: Gengið er beint inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum glugga og útgengi á rúmgóðar svalir í austur. Góður fataskápur við inngang. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Öll raftæki í hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 2 svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 165 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Sérmerkt bílastæði með langtímaleigusamningi fylgir íbúðinni og aðild að rekstrarfélagi bílakjallara.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
