Eign í fjármögnunarferli. Tilboð hefur verið samþykkt og kaupendur vinna að fjármögnun. Vaktaðu eignina til að fá tilkynningu ef salan opnast aftur.
Til söluEr laus straxNýbygging

Valshlíð 3 - íbúð 410

102 Reykjavíkurborg Fastanr. 2532691 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 18
Ásett verð 118.900.000 kr. 1.141.075 kr./m²

Eignin

  • 104,2m² Flatarmál
  • 3 Herbergi
  • 2 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Fjórða hæð
  • Sameiginlegur inngangur
  • Bílskýli
  • Svalir
  • Lyfta
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Skráning

Fasteignanúmer
2532691
Merking
01-04-10
Tegund
Íbúð
Byggingarár
2025
Landeignarnúmer
223517
Hlíðarhorn.is

Lýsing á eign

S8 ehf. og Hlíðarhorn.is kynna Valshlíð 3 - Íbúð 410.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 89,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Stórglæsileg 3ja herbergja rúmgóð horníbúð með útsýni á 4. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 104,2 fm þar af 8,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suður svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang og beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0029. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sameiginlegum mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskýli
  • Svalir
  • Lyfta
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Staðsetning

Valshlíð 3 - íbúð 410, 102 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Nýtt
Vatnslögn
Nýtt
Frárennslislögn
Nýtt
Raflögn
Nýtt
Þak
Nýtt
Gluggar
Nýtt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2424212 Aðaleining Íbúðareign
Byggt 2025Stærð 104,2 m²Herbergi 3Byggingarefni SteyptByggingarstig B3 - Fullg. utan t.t.innr
Húsmat77.650.000 kr.
Brunabótamat59.950.000 kr.
Fasteignamat88.500.000 kr.

Skjöl

Þú verður að skrá þig inn til að sjá skjalalista fyrir þessa eign. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Halldór Jónsson Lögmaður Fasteignasali á vegum Hlíðarhorn.is
Hlíðarhorn.isBorgartún 29, 105
118.900.000 kr.Valshlíð 3 - íbúð 410
Hafa samband