Haukahlíð 2 - íbúð 219
Eignin
- 120,0m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Önnur hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Bílskýli
- Svalir
- Lyfta
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532614
- Merking
- 01-02-19
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 219. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í desember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 88,425,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Vönduð og glæsileg 4ja herbergja íbúð á 2. hæð. Birt stærð er 120 fm þar af 14,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður) og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.
Nánari lýsing: Anddyri er rúmgott og opið með góðum fataskáp. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir inn í innri garð. Eldhús er með eyju. Dökkgrá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, dökkgrá innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, gráum steinflísum og tengi fyrir vask. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0100 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Bílskýli
- Svalir
- Lyfta
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
