Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 429. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í febrúar 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 47,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611 og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Vönduð og virðuleg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð. Íbúðin snýr inn í innri garð. Birt stærð er 51,3 fm þar af 4,4 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í fallegt og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu,með gólfsíðum glugga og útgengi á góðar svalir í vestur. Dökkgrá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, dökkgrá innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 182 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang á leigu bílastæða.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnar íbúðir í Hlíðarhorni hafa fengið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.
Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.
ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.