Haukahlíð 10 - íbúð 431
Eignin
- 59,0m² Flatarmál
- 2 Herbergi
- 1 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Fjórða hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Lyfta
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532712
- Merking
- 01-04-31
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 431. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í apríl 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 50,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611 og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Vönduð og skemmtileg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð. Íbúðin er endaíbúð og snýr inn í innri garð. Birt stærð er 59 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum glugga og útgengi á góðar svalir í vestur. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergimeð góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli.Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 180 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang á leigu bílastæða.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Lyfta
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
