Haukahlíð 10 - íbúð 524
Eignin
- 121,5m² Flatarmál
- 3 Herbergi
- 2 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Fimmta hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532743
- Merking
- 01-05-24
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 524 - Þakíbúð. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í apríl 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611 og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Glæsileg og einstaklega vönduð 3ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Íbúðin er horn/endaíbúð og með glugga á þrjá vegu og aukna lofthæð. Birt stærð er 121,5 fm þar af 12 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir, 2 svefnherbergi, svalir og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2+.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í stórt og þrílýst alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmlega 20 fm þaksvalir í suður. Tengi fer yrir heitan pott á þaksvölum. Eldhús með stórri eyju. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Öll raftæki í hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og útgengi á svalir í vestur. Svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 179 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í langtímaleigu og aðild að rekstrarfélagi bílakjallara.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
