Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til söluNýbygging

Haukahlíð 10 - íbúð 527

102 Reykjavíkurborg Fastanr. 2532746 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 19
Ásett verð 119.900.000 kr. 1.252.874 kr./m²

Eignin

  • 95,7m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Fimmta hæð
  • Sameiginlegur inngangur
  • Svalir
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Nýbygging

Skráning

Fasteignanúmer
2532746
Merking
01-05-27
Tegund
Íbúð
Landeignarnúmer
223517
Hlíðarhorn.is

Lýsing á eign

Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 527 - Þakíbúð. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í apríl 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 89,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á [email protected] eða [email protected]. Þú getur líka hringt í okkur í síma 888-0611 og fengið allar upplýsingar, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Glæsileg og vönduð 4ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Íbúðin er á horni og því tvílýst. Birt stærð er 95,7 fm þar af 11,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar svalir í austur. Góður fataskápur við inngang. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 2 svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 183 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í langtímaleigu og aðild að rekstrarfélagi bílakjallara.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sameiginlegum mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Svalir
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Nýbygging

Staðsetning

Haukahlíð 10 - íbúð 527, 102 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Nýtt
Vatnslögn
Nýtt
Frárennslislögn
Nýtt
Raflögn
Nýtt
Þak
Nýtt
Gluggar
Nýtt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2424267 Aðaleining Íbúðareign
Byggt ÓskráðStærð 95,7 m²Herbergi 4Byggingarefni SteyptByggingarstig B1 - Byggingarleyfi
HúsmatÓskráð
BrunabótamatÓskráð
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Jóhann Halldórsson Framkvæmdarstjóri Fasteignasali á vegum Hlíðarhorn.is
Hlíðarhorn.isBorgartún 29, 105
119.900.000 kr.Haukahlíð 10 - íbúð 527
Hafa samband Gera tilboð