Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 112.
Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA.
Opin og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 54,2 fm þar af 5,8 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í vel skipulagt alrými, eldhús
og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á suðursvalir. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki á baði. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0073. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.